Quantcast
Channel: Kökur – Eldhússögur
Viewing all 71 articles
Browse latest View live

Bananakaka með kanilívafi

$
0
0

Bananakaka með kanilívafi

Núna er kominn nóvember og aðventan mun skella á áður en þið vitið af – trúið mér! Í ár hef ég sett sjálfri mér afar háleit markmið varðandi jólin og þetta “búin að öllu fyrir jólin” dæmi! Þannig er mál með vexti að síðastliðin ár hef ég verið í meistaranámi í háskólanum og ég get staðfest það að þegar húsmóðir þarf að fara í jólapróf, svo ekki sé talað um að skila af sér meistararitgerð fyrir jól auk þess að eiga eiginmann sem er á vöktum sólarhringum saman, þá hefur það býsna slæm áhrif á jólaundirbúninginn – eða réttara sagt andlega heilsu húsmóðurinnar. Ég er svona týpa sem vil ekki slá af neinu, mér dytti til dæmis aldrei í hug að sleppa því að senda út 100 stykki jólakort. Í fyrra var ég að skila af mér meistararitgerðinni minni um jólin, vann við hana nótt og dag og ákvað því að pakka inn jólagjöfunum á mjög einfaldan hátt, þetta varð útkoman.

548770_485563878151708_1794840187_nJá, þið skiljið kannski vandamálið! Fyrir nokkrum árum setti einhver vinur minn á Facebook status á Þorláksmessukvöldi um að viðkomandi væri búinn að öllu og sötraði hvítvínsglas við kertaljós (sem ætti að vera ólöglegur status by the way!). Á þeim tímapunkti sat ég sveitt við jólagjafainnpökkun, þrif og fleira og hét sjálfri mér því að næstu jól þá væri það ég sem sæti með hvítvínsglas á Þorláksmesskvöld við arineld, búin að öllu. Til að gera langa sögu stutta þá hefur þetta einfaldlega ekki tekist enn. Hluti af vandamálinu er að ég er með frestunaráráttu í sambland við fullkomnunaráráttu – blanda sem virkar býsna illa verð ég að segja. Í ár mun þetta hins vegar takast hjá mér, ég finn það á mér! Núna er markmiðið mitt að vera búin að pakka inn jólagjöfum, gera jólakort, kaupa jólaföt á börnin og allt þetta sem þarf að gera fyrir jólin, áður en aðventan rennur upp. Svo ætla ég bara að njóta aðventunnar án nokkurra kvaða. Ég ákvað að skrifa þetta hér á alheimsnetið til þess að veita sjálfri mér aðhald! ;) Í guðanna bænum ýtið við mér þegar aðventan nálgast – ég ætla að standa við þetta í ár! Satt að segja er ég komin vel áleiðis, ég er næstum því búin með jólagjafirnar, búin að kaupa jólafötin á börnin og er að byrja að vinna í jólakortunum!

Þessar jólahugleiðingar eiga svolítið við uppskrift dagsins því í henni er kanill og kanill er jú einstaklega jólalegt krydd. Ég elska kanil, sérstaklega í allskonar bakkelsi. Ég elska líka bananakökur. Það var því meiri snilldin að blanda þessu tvennu saman. Kakan sló í gegn hjá fjölskyldunni, þið verðið bara að prófa hana um helgina! :)

IMG_0946

Uppskrift:

  • 130 g smjör
  • 200 g sykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • 2 stór egg
  • 260 g Kornax hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk kanill
  • 2 stórir bananar eða 3 litlir, stappaðir

Kanilsykurblanda

  • 1 dl sykur
  • 2 msk púðursykur
  • 3 tsk kanill

Ofn hitaður í 175 gráður og smelluform (22-24 cm) smurt að innan. Smjör og sykur hrært saman þar til að blandan verður létt og ljós. Þá er eggjunum bætt út í, einu í senn, hrært á milli. Því næst er vanillusykri, hveiti, matarsóda og kanil bætt út í og hrært þar til allt hefur blandast saman. Að lokum er stöppuðum banönum blandað vel saman við deigið. Bökunarformið er smurt að innan og 1/3 af deiginu er smurt yfir botninn á forminu. Hráefnunum í kanilsykurblöndunni er blandað vel saman og 1/3 hennar dreift jafnt yfir deigið.

IMG_0930Þá er helmingnum af deiginu sem eftir er smurt yfir kanilsykurblönduna. Það er allt í lagi þó það náist ekki alveg að dreifa úr deiginu út í alla kanta. Því næst er helmingnum af kanilsykurblöndunni dreift yfir deigið. Að lokum restinni af deiginu smurt ofan á og endað á því að strá restinni af kanilsykurblöndunni yfir. Bakað í ofni við 175 gráður í 45-55 mínútur eða þar til kakan er farin að losna frá köntunum og kökuprjóni sem stungið er í miðja kökuna kemur hreinn út.

IMG_0950


Filed under: Kökur Tagged: bananaka með kanil, bananakaka með kanil uppskrift, bananakaka og kanill, bananakaka uppskrift, kaka með kanil, kanilkaka

Dillonskaka

$
0
0

DillonskakaÍ gær varð Ósk dóttir mín tvítug. Ég trúi því varla að það séu tuttugu ár síðan hún fæddist, tíminn líður svo hratt! Í tilefni stórafmælisins vorum við með afmælismat fyrir fjölskylduna um kvöldið. Í boði var það sem Ósk finnst best, humar og sushi. Ég keypti stóran og girnilegan humar hjá Fiskikónginum, setti á hann heimatilbúið hvítlaukssmjör og bakaði í ofni í nokkrar mínútur með hvítvíns/rjómasósu, hér er uppskriftin. Við keyptum líka fyrirtaks sushi hjá Tokyo sushi. Þó svo að dóttir mín sé ekki hrifin af kökum og eftirréttum þá bakaði ég eina afmælisköku fyrir okkur hin í eftirrétt, Dillonskökuna dásamlegu.

wEELnVCIQ8mCnepKbCd%Iw Það er kannski að bera í bakkafullann lækinn að setja inn uppskrift að þessari köku því hana þekkja margir. Hins vegar er hún nauðsynleg viðbót í uppskriftasafnið mitt hér á Eldhússögum því ég vil þar geta gengið að öllum þeim uppskriftum sem mér líkar best. Ég hef ekki tölu á hversu oft ég hef bakað þessa ljúffengu köku. Ef þið hafið ekki smakkað hana, kannski vegna þess að ykkur finnst döðlur ekki góðar þá þori ég að fullyrða að þið munið samt falla fyrir kökunni! Hún er ofboðslega mjúk og bragðgóð og karamellusósan er algjörlega æðisleg! Mér finnst þessi kaka best á meðan hún er enn heit, með mikilli karamellusósu og nýþeyttum rjóma, namm!Dillonskaka

Uppskrift:

  • 250 gr. döðlur
  • 3 dl vatn
  • 1 tsk. matarsódi
  • 100 g smjör, mjúkt
  • 130 g púðursykur
  • 2 egg
  • 150 g hveiti
  • 100 g suðusúkkulaði, saxað

Hitið ofninn í 180 gráður. Setjið döðlur í pott ásamt vatni og látið suðuna koma upp, látið malla í 5 mínútur á lægsta hitanum. Þá er matarsóda stráð yfir döðlurnar. Því næst eru döðlurnar maukaðar í matvinnsluvél eða með töfrasprota.IMG_3010 Smjör og sykur þeytt vel saman í hrærivél og eggjum bætt út í, einu í senn. Því næst er döðlumauki bætt út í ásamt hveiti og súkkulaði, blandað vel. Deigið sett í smurt hringform (ca. 24 cm) og bakað í um það bil 30 mínútur.

Karamellusósa:

  • 120 g  smjör
  • 100 g púðursykur
  • 1/2 tsk. vanillusykur
  • 3/4 dl. rjómi

Blandið öllu saman og látið sjóða í 5 mín. Kakan borin fram heit eða volg með heitri karamellsósunni og þeyttum rjóma.

Karamellusósa Dillonskaka


Filed under: Eftirréttir, Kökur Tagged: döðlukaka með karamellusósu, döðlukaka með karamellusósu uppskrift, döðlukaka uppskrift, dillons kaka, dillons kaka uppskrift, dillonskaka uppskrif, kaka með súkkulaði og döðlum

Snickersbitar

$
0
0

SnickersbitarVið fjölskyldan áttum afar notalega helgi sem okkur fannst meira að segja sérstaklega löng. Ástæðan var sú að við ákváðum með örstuttum fyrirvara að skella okkur í bústað yfir helgina. Elfar vinnur alla virka daga og margar helgar líkar þannig að það gildir að nota tækifærið þegar hann fær fríhelgar. Við fórum í Brekkuskóg í bústað og eyddum þar tveimur ljúfum dögum, borðuðum góðan mat (að sjálfsögðu!), spiluðum, fórum í pottinn, lásum, fórum í göngutúra og horfðum á bíómyndir. Mikið var gott að skipta svona um umhverfi og slappa fullkomlega af, bara við fjölskyldan.

Ég var hins vegar búin að lofa á Facebook að setja inn uppskriftina að þessum dásamlega góðu snickersbitum. Þeir voru ótrúlega góðir en ekki nógu fallegir hjá mér. Ég þarf að æfa mig til að fá bitana fallegri, ég veit að fjölskyldan verður ekkert svekkt yfir slíkum æfingum! :) Karamellan var aðeins of lin hjá mér eftir þessa fyrstu tilraun en það var af því að ég fór ekki eftir eigin leiðbeiningum varðandi karamelluna – aðeins of óþolinmóð. En fylgið bara leiðbeiningunum og þá ætti þetta allt að lukkast!

Uppskrift:

  • 4 egg
  • 225 g sykur
  • 1 vanillustöng
  • 290 g Kornax hveiti
  • 1 tsk lyftiduft

Bakarofn hitaður i 190 ˚C. Vanillustöngin er klofin í tvennt og vanillufræin skafin innan úr henni. Þau eru sett í skál ásamt eggjum og sykri. Skálin er set yfir sjóðandi vatn í potti og pískað þar til að sykurinn hefur leyst upp. Þá er blöndunni hellt í hrærivélaskál og þeytt þar til blandan er orðin létt og ljós. Hveiti og lyftidufti er bætt varlega út í með sleikju.

Form (20 cm X 30 cm) er klætt að innan með bökunarpappír og deiginu er hellt í formið. Bakað við 190 gráður í 10 – 15 mínútur eða þar til kakan er orðin ljósbrún á litinn. Þá er hún tekin úr ofninum og leyft að kólna.

IMG_3642

Karamellusósa:

  • 500 g sykur
  • 130 ml vatn
  • 170 ml rjómi
  • 2 tsk vanilludropar
  • 140 g smjör (helst ósaltað)
  • 150 g salthnetur
  • 250 g suðusúkkulaði (eða hjúpsúkkulaði)

Vatn og sykur sett í pott og látið malla við meðalhita (ca 4-5 af 9) þar til sykurinn er uppleystur. Þá er hitinn hækkaður og látið sjóða þannig að blandan “bubbli” þangað til að blandan er orðin gullinbrún. Athugið að á meðan þessu stendur á alls ekki að hræra neitt. Þetta getur tekið um það bil 10-15 mínútur. Potturinn er tekinn af hellunni og nú er rjómanum hrært út í. Því næst er vanilludropunum og smjörinu bætt út í og potturinn settur aftur á helluna. Karamellusósan er að lokum látin malla við mjög vægan hita í ca. 10 mínútur og hrært í reglulega þar til karamellan er orðin vel þykk. Karamellunni er hellt í skál og salthnetunum er bætt út í. Karamellunni með salthnetunum dreift jafnt yfir kalda kökuna og hún svo sett í kæli í minnst 5 tíma, helst yfir nóttu.

IMG_3655IMG_3673

Þegar kakan er komin úr kælinum er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Kakan er skorin niður í passlega bita og brædda súkkulaðinu hellt yfir hvern bita fyrir sig. IMG_3678Gott er að láta bitana liggja á gaffli, ausa brædda súkkulaðinu yfir þá með skeið og leggja svo á bökunarpappír.

Snickersbitar

 


Filed under: Kökur, Konfekt og sælgætismolar Tagged: snickers bitar, snickers bitar uppskrift, snickers stykki, snickersbitar uppskrift

Djöflaterta

$
0
0

DjöflatertaFlensan heldur enn fjölskyldunni í heljargreipum. Ég er aðeins að skána en börnin eru enn veik. Vetrarfríið hefst á morgun og aldrei þessu vant verður heimilisfaðirinn í fríi líka. Sem betur fer vorum við búin að ákveða að taka því rólega og vera bara heima. Vonandi fer krökkunum samt að skána þannig að við getum gert eitthvað skemmtilegt saman í fríinu.

Í þó nokkurn tíma hefur mig langað í góða sneið af djöflatertu. Þetta var töpuð barátta frá byrjun, auðvitað endaði það með því að ég bakaði djöflatertuna – enda ber tertan nafn með rentu! Ég hef verið að skoða og prófa mig áfram með smjör annars vegar og olíu hins vegar í súkkulaðikökur. Ef notuð er olía í súkkulaðiköku þá verður hún mjög mjúk, mýkri en súkkulaðikökur sem í er smjör. Hins vegar verða kökur með smjöri bragðbetri. Þegar notað er smjör er líka auðveldara að hræra lofti í deigið, það verður “flatara” með olíu. Að þessu sinni notaði ég smjör og var afar sátt við djöflatertusneiðina sem ég gat loksins notið eftir margra daga löngun! :)

IMG_3919IMG_3929

Uppskrift:

  • 250 ml sjóðandi vatn
  • 6 msk bökunarkakó, sigtað
  • 120 g dökkur muscovado sykur eða púðursykur
  • 130 g smjör, við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 2 stór egg
  • 230 g hveiti
  • ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk matarsódi
  • 2 tsk vanillusykur

Ofn hitaður í 180 gráður og tvö 20 cm form smurð að innan (ath. þetta eru fremur lítil form). Kakó og muscovado sykur (eða púðursykur) er hrærður út í heita vatninu í skál, skálin lögð til hliðar.

Smjör og sykur hrært saman í hrærivél þar til að blandan verður létt í sér. Þá er eggjunum bætt út í, einu í senn, hrært á milli. Því næst er hveiti, lyftidufti, matarsóda og vanillusykri bætt út. Að lokum er vatninu sem búið var að blanda með sykri og kakó bætt út í og deiginu blandað vel saman. Deiginu er svo skipt á milli bökunarformanna tveggja og bakað í um það bil 30 mínútur við 180 gráður eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kökurnar eru látnar kólna alveg áður en kremið er sett á milli botnanna og smurt utan á kökuna.

IMG_3907IMG_3909

Krem:

  • 120 g smjör, við stofuhita
  • 5 msk kakó
  • 3 msk síróp
  • 250 g flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1 msk mjólk
Smjörið hrært þar til það er orðið kremkennt. Flórsykur, vanillusykur og kakó sigtað saman og blandað smátt og smátt við smjörið. Ef kremið er of þykkt er hægt að bæta við meiri mjólk. Að lokum er sírópi hrært saman við. Kremið er sett á milli botnanna og smurt á alla kökuna þegar hún er orðin alveg köld.
IMG_3925
IMG_3943 IMG_3910

Filed under: Kökur, Tertur Tagged: djöflakaka uppskrift, djöflaterta uppskrift, góð súkkulaðikaka, kökukrem uppskrift, súkkulaðikaka uppskrift, súkkulaðikrem á köku, súkkulaðikrem uppskrift, uppskrift að djöflatertu, uppskrift að súkkulaðiköku, uppskrift að súkkulaðikremi

Fazermint marengsterta

$
0
0

IMG_4594

 

IMG_4600Í gær var ég svolítið eins og sprungin blaðra, ánægð blaðra – en sprungin! :) Fermingin hans Vilhjálms var í fyrradag og heppnaðist ákaflega vel. Ég er orðin hressari núna og nýt þess að vera loksins í fríi. Ég á eftir að blogga meira um þennan dásamlega fermingardag, matinn, uppskriftir og skreytingar en ég þarf að vinna úr myndunum betur áður.

Á meðan ætla ég hins vegar að setja hér inn í dag uppskrift að frábærri marengstertu með myntusúkkulaði. Það er fátt sem slær út gómsætum marengstertum og ég mæli með að þið skellið þessa og bjóðið sem eftirrétt eftir góða páskamáltíð!

IMG_4611

Marengs:

▪   2 dl sykur
▪   1 dl púðursykur
▪   4 eggjahvítur
▪   3 bollar Rice Krispies

Ofn hitaður í 120 gráður við blástur (ef baka á báða botnana samtímis) eða 130 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur, púðursykur og sykur er þeytt þar til marengsinn er orðinn stífur. Þá er Rice Krispies bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Diskur eða kökuform sem er um það bil 23 cm. í þvermál er lagt á bökunarpappír og strikaður hringur eftir disknum. Þetta er gert tvisvar. Marengsinum er skipt í tvennt og hann
settur á sitt hvorn hringinn. Því næst er slétt jafnt úr marengsinum innan hringsins með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C (blástur) í heitum ofni í um það bil 60 mínútur. Best er að láta marengsinn kólna í ofninum.

Fazermint marengsterta

Rjómafylling:

▪   5 dl rjómi
▪   250 g fersk jarðaber, skorin í bita
▪   ca. 200 g fersk bláber
▪   8 molar Fazermint (ca. 60 g), saxaðir smátt

Rjóminn er þeyttur og berjunum ásamt Fazermint molunum er blandað út í rjómann. Rjómablandan er svo sett á milli marengsbotnanna þegar þeir eru orðnir kaldir.

Fazermint krem: 

  • 4 eggjarauður
  • 4 msk flórsykur
  • 12 molar Fazermint (ca. 90 g)
  • 100 g Toms extra súkkulaði 70%

IMG_4925

Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Toms extra súkkulaðið er brotið niður í skál ásamt Fazermint molunum og brætt yfir vatnsbaði. Ef súkkulaðiblandan er of þykk er hægt að bæta örlítilli mjólk eða rjóma út í. Eggjarauðu- og flórsykurblöndunni er svo blandað út í súkkulaðið. Kreminu er því næst dreift yfir marengstertuna. Skreytt með berjum, t.d. jarðaberjum, bláberjum, hindberjum, rifsberjum og blæjuberjum. Tertan er geymd í ísskáp og er góð, ef ekki betri, daginn eftir.

IMG_4585


Filed under: Kökur, Tertur Tagged: auðveld marengsterta, besta marengstertan, góð marengsterta, marengs með rice krispies, marengs uppskrift, marengsbotn uppskrift, marengsterta, marengsterta með jarðaberjum, marengsterta með myntusúkkulaði, marengsterta með piparmyntu, marengsterta með piparmyntusúkkulaði, marengsterta með rice krispies, marengsterta með súkkulaði, marengsterta uppskrift, marenskaka uppskrift, marensterta uppskrift, uppskrifa að marenstertu, uppskrift að marengstertu

Brúnku-ostakaka með Dumle karamellukremi

$
0
0

Brúnku-ostakaka með Dumle karamellukremi

Þá erum við hjónin komin heim eftir dásamlega New York ferð. Sem betur fer rétt sluppum við fyrir horn með flugmannaverkfallið. Öll Evrópuflug féllu niður þennan dag en það var flogið til Bandaríkjana þrátt fyrir nokkra tíma seinkun. Við áttum helgina í fríi saman en svo sótti Elfar ráðstefnu og hélt þar erindi. Á meðan gekk ég New York þvera og endilanga og IMG_3022lét mér sko ekki leiðast! Mér finnst svo gaman að fara í svona borgarferðir og skoða þar menninguna, umhverfið, mannlífið svo ekki sé minnst á matarmenninguna. Þó ég haldi mest upp á gamlar og virðulegar Evrópuborgir líkt og París þá er líka eitthvað svo heillandi  við New York. Borgin er einstök, engin hverfi í borginni eru eins og Central Park er í raun ótrúlegur garður – byggður algjörlega af manna höndum fyrir 150 árum.

Áður en ég fer í svona ferðir þá undirbý ég þær afar vel. Þó það sé líka gaman að ráfa um stefnulaust og skoða það sem fyrir augu ber í ókunnugri borg þá gefur það manni langmest að vera vel undirbúinn. Til dæmis þá leiðist mér ákaflega mikið að eyða óþarfa tíma við að leita að veitingastöðum og enda svo kannski á því að fá vondan og óspennandi mat. Ég er því alltaf búin að bóka borð á veitingastöðum öll kvöldin sem við dveljumst í borginni, betra að vera búin að bóka og afpanta þá frekar ef plönin breytast. Ég skoða mikið síður eins og Tripadvisor þar sem aðrir ferðalangar segja frá sínum upplifunum, svo skoða ég staðsetningu, matseðla og verð á viðkomandi veitingastöðum. Á mjög mörgum veitingastöðum verður hreinlega að bóka með margra vikna fyrirvara sökum vinsælda. Ég skrifa líka hjá mér nokkra góða hádegisverðarstaði í helstu hverfunum og get þá droppað inn í hádeginu þar sem ég er stödd hverju sinni á þeim veitingastöðum sem ég veit að eru góðir. Okkur hefur reynst best að fara á meðaldýra og ódýra veitingastaði í svona ferðum. Oft eru dýrir og fínir veitingastaðir ekkert með betri mat en hægt er að fá annarsstaðar (sérstaklega hér Íslandi IMG_7660þar sem matur á gæða veitingastöðum er einstaklega góður) og verðið á veitingastöðum í stórum borgum er afar hátt. Til dæmis var besti maturinn sem við fengum að þessu sinni djúpsteiktur kjúklingur á pínulitlum stað í Greenwitch Village sem er eiginlega bara “take away” staður – ég get svarið það – ég fæ bara vatn í munninn þegar ég hugsa um hann núna! :) Þetta var jafnframt ódýrasta máltíðin sem við borðuðum í ferðinni! Við fórum þangað fyrsta daginn og töluðum um þennan kjúkling það sem eftir lifði ferðar. Staðurinn heitir Sticky´s Finger Joint (ef vel er að gáð þá sést í okkur hjónin á þessari mynd! :) ) og þið megið ekki láta hann framhjá ykkur fara ef þið eruð í New York. Við deildum með okkur nokkrum tegundum og mér fannst mozzarellafyllti kjúklinginn bestur en Elfar var hrifnastur af Wasabi kjúklingnum. IMG_3023Þetta verður sannarlega fyrsti viðkomustaður okkar í næstu ferð til New York! :)

IMG_7691Við gerðum margt annað skemmtilegt. Á vegum ráðstefnunnar var ofslega flott galakvöld á American Museum of Natural History. Þar var í boði þriggja rétta dásamlega góður málsverður í þessu frábæra umhverfi. Einnig tróð upp magnaður gospel kór og í kjölfarið frábær hljómsveit sem spilaði undir dansi fram á nóttu. Hápunkturinn var hins vegar Broadway sýningin sem við fórum á, Jersey Boys. Hún byggist á skrautlegum ferli hljómsveitarinnar Frankie Valli and the Four Seasons. Þeir áttu marga smelli sem lifa góðu lífi í dag. Á sviðinu í Broadway er svo brjálæðislega hæfileikaríkt fólk að það er eiginlega sama hvaða sýningu maður sér, þær eru allar frábærar. Við vorum reyndar einstaklega ánægð með þessa sýningu því við vorum svo hrifin af lögunum. Til dæmis er lagið Begging búið að hljóma í Ipodi okkar beggja stanslaust undanfarna daga. Ef skoðaður er listinn á Tripadvisor yfir topp “attractions” í New York þá trónir einmitt Jersey Boys söngleikurinn efst þar á lista. Ég mæli með að nota TKTS básana til að kaupa miða á Broadway sýningar með 50% afslætti. Við fengum miða á 73 dollara per mann sem er sannarlega hvers dollara virði.

En svo ég víki frá New York að Eldhússögu dagsins þá segir sú saga frá einstaklega djúsí og góðri köku! Þessi kaka hæfir sérstaklega vel sem eftirréttur því hún er sæt og góð og hæfilegt að fá sér bara eina sneið og satt best að segja hefur hún slegið í gegn hjá öllum þeim sem hafa smakkað hana hjá mér. Að blanda saman brownie og ostaköku er bara snilld og kremið sjúklega gott, súkkulaði, karamella og hnetur brætt saman … þetta er bara klikkuð blanda börnin góð! :)

IMG_4584

Uppskrift: 

Rjómaostablanda

  • 300 gr Philadelphia ostur
  • ¾ dl sykur
  • 1 tsk vanillusykur

Philadelphia ostur, sykur og vanillusykur er þeytt saman þar til blandan verður slétt. Blandan er geymd á meðan brúnkudeigið er útbúið.

Brúnku deig:

  • 2 egg
  • 100 gr smjör
  • 2 dl sykur
  • 3 msk bökunarkakó
  • 2 dl hveiti
  • ½ tsk lyftiduft
  • 1 dl pistasíur frá Ültje, saxaðar gróft

Bökunarofn hitaður í 180 gráður. Egg og sykur þeytt þar til blandan verður létt og ljós. Á meðan er smjör og kakó sett í pott og hitað við vægan hita þar til smjörið er bráðnað og hefur blandast saman við kakóið. Því næst er smjörblöndunni bætt út í eggjablönduna. Að lokum er hveiti, lyftidufti og grófsöxuðum pistasíum blandað varlega saman við deigið með sleikju. Bökunarform (22 cm) er smurt að innan, helmingnum af brúnkudeiginu er hellt í formið og slétt úr því. Því næst er rjómaostablöndunni dreift varlega yfir brúnkudeigið. Að lokum er restinni af brúnkudeiginu dreift yfir rjómaostablönduna. Bakað neðarlega í ofni við 180 gráður í 30-40 mínútur. Kakan á að vera vel blaut í miðjunni þegar hún kemur úr ofninum. Kakan er látin kólna í forminu.

Dumle karamellu-hnetukrem

  • 1 poki Dumle go nuts (175 g)
  • 1-2 msk rjómi

Dumle go nuts bitarnir (gott að geyma um það bil þrjá bita til að skreyta með) eru settir í pott og bræddir við vægan hita. Rjóma er bætt út í þar til blandan hefur náð passlegri þykkt. Þegar kakan er orðin köld er hún tekin úr bökunarforminu og Dumle hnetu kreminu dreift yfir kökuna. Nokkrir Dumle bitar eru saxaðir gróft og stráð yfir kremið. Best er að geyma kökuna í kæli yfir nóttu áður en hún er borin fram.

 

IMG_4569 IMG_4637

 


Filed under: Eftirréttir, Kökur, Tertur Tagged: brúnkukaka og ostakaka, brownieostakaka, Brownies með karamellusósu, dumle go nuts upp, kaka með dumle, ostakaka og brúnka, ostakaka og brownie

Bananakaka með hnetusmjöri og súkkulaði

$
0
0

Bananakaka með hnetusmjöri og súkkulaðiEf þið hugsið eins og ég þá eruð þið nú þegar fallin fyrir þessari köku bara með því að lesa titilinn á bloggfærslunni, bananakaka með hnetusmjöri og súkkulaði – hvernig er ekki hægt að falla fyrir slíku! Það er samt algjört vesen hversu erfitt það er að taka myndir af brúnum matréttum og kökum og láta góða bragðið skila sér í gegnum myndirnar. En trúið mér, þessi kaka er algjört æði! Þetta er kaka sem er “must try” gott fólk! :)

IMG_6048

 

Uppskrift: 

  • 3 stórir bananar, vel þroskaðir
  • 1 dl hnetusmjör
  • 1 dl sykur
  • 1 dl púðursykur
  • 1 dl ab-mjólk eða súrmjólk
  • 100 g smjör, brætt
  • 2 egg
  • 5 dl Kornax hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1/2 tsk salt
  • 150 g Siríus konsum suðusúkkulaðidropar (1 poki)

Ofn hitaður í 175 gráður við undir og yfirhita. 24 cm form er smurt að innan. Bananar eru stappaðir og settir í hrærivélaskál. Hnetusmjöri, sykri, púðursykri ab-mjólk, bræddu smjöri og eggjum bætt út í og öllu hrært saman þar til deigið verður slétt. Þá er hveiti, matarsóda og salti hrært saman við.  Að síðustu er súkklaðidropunum hrært saman við deigið.  Deiginu er að lokum hellt í bökunarformið og bakað við 175 gráður í um það bil 50-60 mínútur. Kakan er góð borin fram volg en ekki síðri eftir að hún er orðin köld.

IMG_6038IMG_6039IMG_6046

 


Filed under: Kökur Tagged: auðveld kaka, Bananakaka, bananakaka með hnetusmjöri, bananakaka með súkkulaði uppskrift, bananakaka uppskrift, einföld bananakaka, einföld kaka, góð kaka, súkkulaði bananakaka, Súkkulaði bananakaka uppskrift, súkkulaði og bananakaka, Súkkulaðibananakaka uppskrift, uppskrift bananakaka

“Kladdkaka” með appelsínukaramellu Pippi og Rice krispies

$
0
0

Kladdkaka með appelsínukaramellu Pipp og Rice KrispiesÍ dag eiga Eldhússögur tveggja ára afmæli! Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég opnaði þetta blogg fyrir tveimur árum. Ég hef sett hingað á síðuna tæplega 400 uppskriftir og á heimsóknirnar farið vel yfir 20 þúsund á dag þegar mest lætur. Á eins árs afmælinu í fyrra setti ég inn uppskrift að algjörri kökubombu, Súkkulaðitertu með söltu karamellukremi. Tveggja ára afmælisuppskriftin getur ekki verið eftirbátur þeirrar köku og er það sannarlega ekki. Enda getur það ekki orðið annað en veisla fyrir bragðlaukana þegar sænsku kladdkökunni er blandað saman við nýjasta Pipp súkkulaðið og Rice krispies! Eins og ég hef talað um áður þá verð ég alltaf yfir mig spennt þegar það kemur nýtt súkkulaði á markaðinn og ég get ekki hamið mig fyrr en ég hef komið því á einhvern hátt inn í uppskrift að köku eða eftirrétti! :) Að þessu sinni settu Nói og félagar nýtt Pipp súkkulaði á markaðinn, Pipp með appelsínukaramellukremi. Ég linnti auðvitað ekki látum fyrr en það var komið í köku hjá mér sem ég bauð stelpunum í saumó upp á nýverið.

IMG_6055

Uppskrift:

  • 3 egg
  • 2 1/2 dl sykur
  • 4 msk kakó
  • 2 dl Kornax hveiti
  • 1 tsk vanillusykur
  • 150 g smjör, brætt og kælt lítillega
  • 100 g Pipp með appelsínukaramellu

Ofan á kökuna:

  • ca. 6-7 dl Rice Krispies
  • ca. 2 dl mini marshmallow – litlir sykurpúðar  (fást í Søstrene Grene - má sleppa)
  • 100 g Siríus mjólkursúkkulaði
  • 100 g Siríus suðusúkkulaði
 Ofn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita og 24. cm smelluform smurt að innan. Ég nota kökuform úr Kokku eins og sést hér, frábærlega þægileg og þá þarf ekki að ná kökunni úr forminu. Egg og sykur hrært saman (ekki þeytt) þar til blandan verður létt og ljós. Þá er þurrefnunum bætt út og að lokum brædda smjörinu. Hrært saman í stutta stund þar til allt hefur blandast vel saman, gætið þess þó að hræra ekki deigið of mikið. Deiginu er hellt í bökunarformið og Pipp súkkulaðið er brotið niður í bita og þeim raðað hér og þar ofan á deigið, bitunum er þrýst lítillega ofan í deigið. Bakað við 175 gráður í um það bil 25 mínútur. Athugið að kakan á að vera blaut og þó svo að hún virðist vera mjög blaut þegar hún kemur úr ofninum þá mun hún stífna þegar hún kólnar. Kakan er látin kólna í bökunarforminu áður en Rice krispies er sett ofan á.
IMG_6056

Mjólkursúkkulaði og suðusúkkulaði brætt saman yfir vatnsbaði. Rice krispies og sykurpúðum (má sleppa) bætt út í smátt og smátt og magnið af því metið miðað við súkkulaðið. Blöndunni er því næst hellt yfir kökuna (sem er enn í bökunarforminu) og dreift vel úr því. IMG_6062 Kakan látin kólna í ísskáp í minnst tvo tíma eða þar til Rice krispies blandan hefur stífnað. Það er gott að láta kökuna standa í smá stund við stofuhita áður en hún er borin fram með þeyttum rjóma.

IMG_6072IMG_6108

 


Filed under: Afmæli, Kökur Tagged: karamellupipp uppskrift, kladdkaka með pipp, kladdkaka uppskrift, pipp uppskrift, Pipp uppskriftir, rice krispies, rice krispies kaka uppskrift, rice krispies uppskrift, rice krispies uppskrift kökur, sænsk kladdkaka, súkkulaðikaka með rice krispies, súkkulaðikaka uppskrift, uppkskrift rice krispies, uppskrift kladdkaka, uppskrift rice krispies

Gulrótarostakaka

$
0
0

GulrótarostakakaMér finnst bakaðar ostakökur mikið lostæti og held einnig mikið upp á gulrótarkökur. Ég var því mjög spennt fyrir því að smakka gulrótarostakökuna á Cheesecake Factory þegar ég var í Chicago í sumar. Hún var að sjálfsögðu dásamlega góð og ég gat ekki beðið eftir því að búa til slíka köku sjálf. Það er hægt að blanda þessum tveimur kökum saman á ýmsan hátt. Til dæmis tvinna saman gulrótarkökudeigi og ostaköku. En í þessari uppskrift ákvað ég að fara eins fljótlega leið og hægt var og setti gulræturnar út í ostakökuna. Mér fannst útkoman ljúffeng og held að gestirnir sem gæddu sér á kökunni í afmælisveislunni hafi verið á sama máli því hún kláraðist upp til agna! :)

IMG_7347

Uppskrift: 

  • 200 g Digestive kex, mulið smátt
  • 100 g smjör, brætt
  • 1 msk sykur
  • 600 g Philadelphia rjómaostur
  • 1.5 dl sykur
  • 2 msk púðursykur
  • 3 egg
  • 60 ml rjómi
  • 2 msk kartöflumjöl
  • 2 tsk vanillusykur
  • 1 tsk límónusafi (lime)
  • 1 tsk kanill
  • 150 g rifnar gulrætur

ofan á kökuna:

  • 8 Lu kanilkexkökur eða Digestive kex (ca. 100 g), mulið smátt
  • 2 msk púðursykur
  • 1 tsk kanill
  • 60 g smjör, kalt

Ofn stilltur á 175 gráður við undir- og yfirhita. Smjör brætt og kex mulið smátt og því blandað saman við smjörið. Sett í smurt bökunarform með lausum botni, blöndunni þrýst ofan í botninn og aðeins upp í hliðar á forminu. Botnin bakaður í 10 mínútur og látin kólna.

Rjómaostur, sykur og púðursykur sett í skál og þeytt þar til að blandan verður kremkennd. Eggjum bætt við, einu í senn, þeytt vel á milli en þó ekki mjög lengi. Rjómanum smátt og smátt bætt við og þeytt á meðan. Kartöflumjöli, vanillusykri, límonusafa og kanill er því næst bætt út og hrært saman við blönduna. Að síðustu er rifnu gulrótunum bætt út í og blandað saman við deigið með sleikju. Blöndunni hellt yfir kexbotninn og bakað við 175 gráður í 45 mínútur. Á meðan er hráefnunum ofan á kökuna hnoðað saman í höndunum. Þegar 45 mínútur eru liðnar af bökunartímanum er kakan tekin úr ofninum, deiginu dreift yfir kökuna og hún sett aftur inn í ofn í ca. 8-10 mínútur. Að því loknu er kakan látin kólna og sett að síðustu inn í ísskáp í nokkra tíma, helst yfir nóttu, áður en hún er borin fram.

IMG_7431


Filed under: Kökur, Tertur Tagged: auðveld ostakaka, bökuð ostakaka, bökuð ostakaka uppskrift, góð ostakaka, gulrótarkaka ostakaka, gulrótarostakaka uppskrift, new york ostakaka, ostakaka með gulrótum, ostakaka og gulrótarkaka

,,Rocky road“ brúnkur

$
0
0

,,Rocky road" brúnkurÉg veit ekki hvað það var með mig í gær en frá því að ég kom heim úr vinnunni langaði mig svo óskpalega mikið að baka mjög gómsæta köku. Því fór svo, að þegar ég tók lasagna úr ofninum á kvöldmatartímanum, fór kaka inn í heitan ofninn. Ég ákvað að baka köku sem ég hef haft augastað á lengi en uppskriftin kemur frá sænska kökukrúttinu henni Leilu. Ég reyndar breytti uppskriftinni dálítið, til dæmis minnkaði sykurinn töluvert án þess að það kæmi að sök. Kremið er afar ljúffengt og það er gefið upp að notað skuli 70% súkkulaði. Það er þó ekki öllum sem geðjast slíkt súkkulaði, það er því hægt að nota hefðbundið suðusúkkulaði í staðinn eða 56% súkkulaði. Ég notaði stóra sykurpúða sem ég klippti niður en best og fallegast er að nota mini-marshmallows. Þeir fást hins vegar á fáum stöðum, það er helst að ég hafi séð þá í Söstrene Grene. Þegar kakan var tilbúin dugði mér alveg lítill biti til þess að seðja kökulöngunina. Ég ákvað því að drífa mig með kökuna í vinnuna í morgun svo að þessi ómótstæðilega kaka myndi ekki standa bara og freista mín stöðugt! :)

IMG_7667

Uppskrift (í 26×38 cm form)

  • 350 g mjúkt smjör
  • 4.5 dl sykur
  • 3 dl kakó
  • 1 dl ljóst síróp
  • 1/2 tsk salt
  • 6 lítil eða meðalstór egg
  • 3 dl hveiti

Karamelluglassúr:

  • 2 dl rjómi
  • 1 dl mjólk
  • 3/4 dl ljóst síróp
  • 300 g suðusúkkulaði eða 56%-70%, saxað

Rocky Road:

  • 1 poki Dumle karamellur (120 g), skornar eða klipptar í þrennt
  • ca. 1.5 dl pistasíur og/eða kasjúhnetur
  • ca. 2 dl salthnetur
  • nokkrir sykurpúðar klipptir niður eða mini-marshmallows

IMG_7658

Ofn stilltur á 175 gráður og stórt form (ca. 26×38 cm) smurt að innan. Smjör og sykur hrært þar til það verður létt og ljóst. Kakói, sírópi og salti bætt út í. Því næst er eggjum bætt út í, einu í senn. Að síðustu er hveitinu blandað út í. Deiginu er því næst hellt í bökunarformið og bakað í miðjum ofninum við 175 gráður í 30-35 mínútur, kakan á að vera fremur blaut í miðjunni. Þá er kakan látin kólna á meðan glassúrinn er búin til.

Rjómi, mjólk og síróp er sett saman í pott og hrært í pottinum á meðan suðan er að koma upp. Þegar suðan hefur komið upp er potturinn tekinn af hellunni og súkkulaðinu bætt út í, hrært þar til það hefur bráðnað. Þá er glassúrnum (ath. að blandan á að vera þunn) dreift jafnt yfir kökuna. Því næst eru hnetum, Dumle karamellum og sykurpúðum dreift jafnt yfir kremið. Kakan er sett í ísskáp í ca. tvo tíma eða þar til kremið hefur stífnað.

IMG_7675

Dásamlega fallega blúndustellið frá Green Gate

 


Filed under: Eftirréttir, Kökur

Súkkulaðirúlluterta með hnetu-Nizza og banönum

$
0
0

IMG_7706Nói og Siríus efndu til samkeppni um bestu uppskriftina fyrir árlega bæklinginn sinn. Ég var svo heppin að vinna annað árið í röð! :) Í fyrra vann ég með þessa uppskrift en í ár var ég með útfærslu af þessari uppskrift sem var vinningsuppskriftin. Endilega verðið ykkur úti um þennan flotta bækling, ég held að hann sé rétt ókominn í búðir. Ég fékk veglegan vinning, gjafabréf út að borða, leikhúsmiða og körfu með allskonar bökunarvörum frá Nóa og Siríus. IMG_7696  Um helgina skruppum við í sunnudagskaffi til foreldra minna og eins og svo oft áður ákvað ég að búa til eitthvað gott á kaffiborðið og eins og svo oft áður var ég á síðustu stundu – mér er bara ekki viðbjargandi með það! :) En 45 mínútum áður en ég var mætt heim til foreldra minna var ég ekki enn búin að ákveða hvað ég ætti að baka, það kom ekki að sök því kakan sem ég ákvað að baka er einstaklega fljótleg í bakstri. Ég mundi eftir girnilega hnetusmjörinu í gjafakörfunni og á mettíma varð þessi dásamlega góða kaka tilbúin! IMG_7701 Uppskrift:

  • 3 egg
  • 1,5 dl sykur
  • 50 g smjör, brætt
  • 2 msk mjólk
  • 2 msk kakó
  • 2 msk kartöflumjöl
  • 5 msk hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ca. 1/2 dós Nizza hnetusmjör frá Nóa og Siríus
  • 2 meðalstórir bananar, vel þroskaðir, skornir í þunnar sneiðar.

IMG_7834 IMG_7706 Ofn hitaður í 250 gráður undir/yfirhita. Egg og sykur þeytt létt og ljóst. Mjólkinni er hellt út í brædda smjörið. Kakói, kartöflumjöli, hveiti og lyftidufti blandað saman. Því er svo bætt út í eggjablönduna á víxl við smjör/mjólkurblönduna. Þá er deiginu helt á ofnplötu klædda bökunarpappír og dreift úr deiginu þannig að það myndi ferning. Bakað við 250 gráður í ca. 4-5 mínútur. Um leið og kakan kemur úr ofninum er henni hvolft á bökunarpappír. Gott er að bíða í nokkrar mínútur eftir því að kakan kólni svolítið áður en Nizza kremið er borið á kökuna, annars bráðnar það. Þegar Nizza kreminu hefur verið dreift jafnt yfir kökuna og bananasneiðunum raðað yfir, er henni rúllað upp.

IMG_7708


Filed under: Kökur

Bananamuffins með Dumle karamellum

$
0
0

IMG_8009IMG_7975Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara út að borða og hér í Reykjavík eru ákaflega margir góðir veitingastaðir – gæðin eru í raun ótrúleg miðað við okkar litla land. Það hefur komið fyrir að mér hafi verið boðið að borða á veitingastöðum gegn því að ég fjalli um það hér á síðunni, en þeim boðum hef ég alltaf hafnað. Ég vil ekki mæla með neinu nema það komi beint frá mínu eigin hjarta. Að því sögðu þá langar mig að mæla með nýjum veitingastað sem við hjónin fórum á með vinahjónum okkar um daginn. Þetta er veitingastaðurinn Restó á Rauðarárstíg (þar sem Madonna var áður). Við snæddum þar fimm rétta dásamlega góða máltíð á sanngjörnu verði. Í eftirrétt var svokölluð „ananassúpa með kókos og myntu“. Þetta er eftirréttur sem mér hefði líklega aldrei dottið í hug að panta mér að fyrra bragði en maður minn hvað hann var góður! Svo var hægt að fá vínflöskur á eðlilegu verði (á sumum veitingastöðum eru vínflöskur á fáránlega uppsprengdu verði finnst mér), staðurinn er mjög hlýlegur og kósý og síðast en ekki síst góð þjónusta. Ég er alltaf á höttunum eftir því að heyra um góða veitingastaði og langaði því einfaldlega að deila þessu með ykkur! :)

Þó það sé langt síðan ég setti inn uppskrift hingað á síðuna hef ég síður en svo verið löt í eldhúsinu. Ég tók að mér það verkefni að búa til nokkrar uppskriftir með Dumle karamellum. Það var sko ekki leiðinlegt verkefni og fjölskylda mín, sem fórnaði sér í smökkunina af lífi og sál, var heldur ekkert ósátt! :) Það er býsna skemmtilegt að lauma inn mjúkri súkkulaðihúðaðri karamellu inn í eftirrétti og kökur. Eftir að ofninn hafði verið stöðugt í gangi tvær helgar í röð þá varð þetta niðurstaðan.

dumle

Ég verð að segja að ég var býsna ánægð með allar þessar uppskriftir og hlakka til að deila þeim öllum með ykkur. Þó það sé nú bara mánudagur get ég ekki staðist að setja inn eina af uppskriftunum í dag! :) IMG_7967Sú fyrsta eru súpereinfaldar og æðislegar góðar bananamuffins með Dumle. Ég prófaði bæði með venjulegu Dumle og dökku. Flestum í dómnefndinni minni fannst ljósu karamellurnar tóna betur með bananabragðinu en þær dökku fengu líka atkvæði, þær eru líka mjög góðar – með sterkara súkkulaðibragði.

IMG_7973

Bananamuffins með Dumle karamellum (15 stk)

  • 130 g smjör
  • 2 egg
  • 150 g sykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 200 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 3 þroskaðir bananar, stappaðir
  • 1 poki Dumle orginal eða Dumle Dark

Ofn hitaður í 200 gráður við undir- og yfirhita. Smjörið brætt og kælt dálítið. Egg og sykur hrært þar til blandan verður létt og ljós, þá er brædda smjörinu bætt út smátt og smátt. Vanillusykri, hveiti, lyftidufti og kanil blandað út í en þess gætt að hræra ekki lengi. Að lokum er stöppuðum banönum blandað út í deigið. Deiginu er skipt á milli 15 muffins-forma (fyllt um það bil 2/3) og einni Dumle karamellu þrýst létt ofan í deigið í hverju formi. Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 15 mínútur eða þar til kökurnar hafa tekið góðan lit. Best er að bera kökurnar fram volgar.

IMG_7991 IMG_8011

 


Filed under: Kökur Tagged: bananamúffur, bananamuffins, bananar uppskrift, bananauppskrift, kaka með dumle, muffins með banönum, muffins með dumle, uppskrift með dumle

Salthnetuterta með Dumle karamellukremi‏

$
0
0

Salthnetuterta með Dumle karamellukremi Ég verð að deila með ykkur uppskrift að svo dásamlega góðri tertu. Ég fór með hana í stórt fjölskylduboð um daginn og þar var fólk hreinlega að missa sig yfir þessar tertu. Ég er að baka hana aftur núna í kvöld og ætla að fara með hana á kökuhlaðborð í skóla barnanna á morgun. Ég er meira að segja að hugsa um að baka hana aftur fyrir aðventuboð á sunnudaginn. Ég náði nefnilega bara að smakka örlítinn bita af þessari ljúffengu tertu í boðinu um daginn og er búin að dreyma um að baka hana aftur við fyrsta tækifæri. Ég held að ég geti fullyrt að þessi tertuuppskrift sé alveg skotheld! :) IMG_8083 Uppskrift:

  • 4 eggjahvítur (lítil egg)
  •  3 dl sykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • 160 g Ültje salthnetur
  • 80 g Ritz kex

Dumle krem:

  • 60 g smjör
  • 1 poki dökkt Dumle (110 g) eða orginal
  • 4 eggjarauður

Ofan á kökuna:

  • 3 dl rjómi
  • 40 g Ültje salthnetur, saxaðar gróft
  • nokkrir Dumle molar, skornir eða klipptir í þrennt.

IMG_8072

Ofn hitaður í 180 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur stífþeyttar og sykrinum bætt út í smátt og smátt. Salthnetur og Ritzkex mulið smátt í matvinnsluvél og bætt út í marengsinn með sleikju ásamt vanillusykri og lyftidufti. Deiginu er hellt í 24 cm smellu- eða silíkonform. Bakað í ofni við 180 gráður í um það bil 25-30 mínútur.

Smjör er sett í pott og brætt við meðalháan hita. Dumle molum er bætt út í og allt látið bráðna, kælt lítillega. Eggjarauður eru þeyttar ljósar og léttar og bræddu Dumleblöndunni bætt út í. Kakan er sett á kökudisk og Dumlekreminu dreift yfir kökuna. Að lokum er rjóminn þeyttur og honum dreift yfir kökuna. Skreytt með gróft söxuðum salthnetum og niðurskornum Dumle karamellum. Salthnetuterta með Dumle karamellukremiIMG_8084


Filed under: Eftirréttir, Kökur, Tertur Tagged: dumle uppskriftir, kaka með ritz kexi, kaka með salthnetum, marengsterta með karamellukremi, Marengsterta með salthnetum og ritz kexi, terta með dumle karamellukremi, terta með karamellukremi

Dumle ostakaka

$
0
0
 Dumle ostakaka
Líklega eru fleiri en ég farnir að velta fyrir sér hvað eigi að hafa í matinn á gamlárskvöld. Við verðum stór hópur heima hjá foreldrum mínum og fögnum áramótunum saman. Ég mun sjá um forréttinn og eftirréttinn. Mamma ætlar að hafa kalkúnabringur í aðalrétt þar sem meðlætið verður fengið héðan. Kalkúnabringurnar ætlum við að hægelda en ég prófaði það um daginn þegar ég var með jólasaumaklúbb. Bringurnar urðu einstaklega meyrar og góðar við slíka eldun.
Mér finnst alltaf sérstaklega gaman að búa til eftirrétti og hér set ég inn uppskrift að ljúffengri ostaköku sem myndi sóma sér vel á veisluborðinu á gamlárskvöld. Ég er satt að segja ofsalega ánægð með þessa ostaköku sem ég þróaði þegar ég tók að mér að gera uppskriftir úr Dumle súkkulaðihúðuðu karamellunum. Mér finnst ostakökur æðislegar og þessi fer beint á topplistann! Ég prófaði hana í matarboði um daginn og það heyrðust stunur frá fólki, það er alltaf góðs viti! :)
IMG_8106

Uppskrift:

 Botn:

 ·      200 g Lu Bastogne duo kex

·      70 g smjör, brætt

·      1 msk hunang

 Ostakaka:

 ·      400 g philiadelphia rjómaostur

·      2 egg

·      1 dós sýrður rjómi (36%) 180 g

·      ½  dl sykur

·      200 g dökkt Dumle (ca 20 molar)

·      2 msk rjómi (+ þeyttur rjómi til að bera fram með kökunni)

·      Hindber eða önnur ber til skreytingar

 Ofn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita. Smjör brætt og kex mulið smátt og því blandað saman við smjörið ásamt hunanginu. Sett í smurt bökunarform með lausum botni, blöndunni þrýst ofan í botninn. Sett í kæli á meðan ostakökublandan er útbúin.

Dumle molarnir eru bræddir yfir vatnsbaði ásamt rjómanum og kælt lítillega. Rjómaostur, sýrður rjómi og sykur sett í skál og þeytt þar til að blandan verður kremkennd. Eggjum bætt við, einu í senn, þeytt vel á milli en þó ekki mjög lengi. Í lokin er bræddu Dumle bætt út í og blandað vel saman við rjómaostablönduna með sleikju. Blöndunni er því næst hellt yfir botninn og bakað við 175 gráður í um það bil 30-35 mínútur Að því loknu er kakan látin kólna og sett að síðustu inn í ísskáp í nokkra tíma, helst yfir nóttu, áður en hún er borin fram. Gjarnan skreytt með hindberjum og sigtuðum flórsykri og borin fram með þeyttum rjóma.

Fallega stellið er af tegundinni Green gate og fæst hér.

IMG_8110IMG_8115 IMG_8111


Filed under: Eftirréttir, Kökur, Tertur Tagged: bökuð ostakaka, desert fyrir matarboð, desert uppskrift, dumle uppskriftir, eftirréttir uppskriftir, eftirréttur fyrir marga, eftirréttur fyrir matarboð, einfaldur desert, góð ostakaka, góðir eftirréttir, ostakaka með dumle, ostakaka uppskrift

5 mínútna Dumle súkklaðikaka í bolla

$
0
0

IMG_8150

Gleðilegt ár kæru lesendur! Í upphafi nýs árs setjum við okkur oftar en ekki ótal markmið sem snúast um hollara mataræði, meiri hreyfingu og betri lífshætti. Með þessari uppskrift er ég sannarlega ekki leggja lóð mín á þá vogarskál, síður en svo! :) Það ríkir enn Dumle æði hér á síðunni minni eftir að ég útbjó nokkrar slíkar uppskriftir seint á síðasta ári og enn á ég eftir að birta nokkrar þeirrar. Ég sá þessa uppskrift á fleiri en einum sænskum uppskriftavef og hafði satt best að segja ekki mikla trú á því að kakan væri sérstaklega góð, þetta væri of einfalt til að vera satt. En ég hafði sannarlega rangt fyrir mér, þessi kaka er alltof góð! Svo góð að ég er núna að reyna að gleyma að ég geti á hverju kvöldi búið mér til ljúffenga köku á 5 mínútum! :)

IMG_8158

Uppskrift:

·      4 msk hveiti

·      4 msk sykur

·      3 msk kakó

·      50 g smjör, brætt

·      2 msk mjólk

·      1 egg

·      4 Dumle molar

Öllu blandað saman fyrir utan Dumle molana og deiginu skipt í tvo bolla. Dumle molarnir eru skornir í tvennt og fjórum molum þrýst ofan í deigið í hvorn bolla. Bakað í örbylgjuofni í um það bil 50 sekúndur við hæsta styrk (ath. að tíminn er misjafnt eftir ofnum). IMG_8153


Filed under: Kökur Tagged: örbylgju súkkulaðikaka, örbylgjuofnakaka, bolla súkkulaðikaka í örbylgjuofni, bollakaka, dumle uppskriftir, kaka í örbylgjuofni, súkkulaðikaka á 5 mínútum, súkkulaðikaka í örbylgjuofni, súkkulaðikaka í bolla

Marengsterta með piparmyntu Nóa kroppi og Pippi

$
0
0

Marengsterta með piparmyntu Nóa kroppi og Pippi Ég hef talað um það áður að um leið og Nói Siríus kemur með eitthvað nýtt sælgæti á markað þá endar það yfirleitt mjög fljótt í tertu eða köku hjá mér. Núna kom á markað nýtt Nóa kropp, að þessu sinni með piparmyntubragði. Hingað til hefur ekkert Nóa kropp slegið út hinu eina og sanna en ég held svei mér þá að þetta komi ansi nálægt því. Ég veit ekki hvort þið kannist við Remi piparmyntu súkkulaðikexið (ef ekki – þá mæli ég með þeim kynnum!), nýja Nóa kroppið minnir mikið á það ljúffenga kex. Ég ákvað að baka margengstertu fyrir afmæli litlu frænku minnar og nota nýja piparmyntu Nóa kroppið ásamt piparmyntu Pippi. Vissulega er þessi marengsterta engin nýjung, bara tilbrigði við þessa gömlu góðu en hún var allavega mjög vinsæl í veislunni og ég mæli sannarlega með henni. Það mætti kannski halda að þessi færsla væri styrkt af Nóa Siríus en svo er ekki … það er eiginlega öfugt, ég er öflugur styrktaraðili Nóa! ;) Marengsterta með piparmyntu Nóa kroppi og Pippi Marengs:

  • 2 dl sykur
  • 1 dl púðursykur
  • 5 eggjahvítur
  • 3 bollar Rice Krispies

Ofn hitaður í 120 gráður við blástur (ef baka á báða botnana samtímis) eða 130 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur, púðursykur og sykur er þeytt þar til marengsinn er orðinn stífur. Þá er Rice Krispies bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Diskur eða kökuform sem er um það bil 23 cm. í þvermál er lagt á bökunarpappír og strikaður hringur eftir disknum. Þetta er gert tvisvar. Marengsinum er skipt í tvennt og hann
settur á sitt hvorn hringinn. Því næst er slétt jafnt úr marengsinum innan hringsins með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C (blástur) í heitum ofni í um það bil 60 mínútur. Best er að láta marengsinn kólna í ofninum.

Rjómafylling:

  • 5 dl rjómi
  • 250 g fersk jarðaber, skorin í bita
  • ca. 150 g Nóa kropp með piparmyntu
  • 50 g Pipp með piparmyntu, skorið smátt

Rjóminn er þeyttur og jarðaberjunum ásamt Nóa kroppi og Pippi er blandað út í rjómann. Rjómablandan er svo sett á milli marengsbotnanna þegar þeir eru orðnir kaldir.

Pipp krem: 

  • 5 eggjarauður
  • 5 msk flórsykur
  • 150 g Pipp með piparmyntu
  • 100 g suðusúkkulaði

Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Pipp og suðursúkkulaði er brotið niður í skál og brætt yfir vatnsbaði. Ef súkkulaðiblandan er of þykk er hægt að bæta örlítilli mjólk eða rjóma út í. Þegar súkkulaðið hefur bráðnað og kólnað örlítið er þvi bætt varlega út í eggjarauðu- og flórsykurblönduna. Kreminu er því næst dreift yfir marengstertuna. Skreytt með berjum, t.d. jarðaberjum, bláberjum, hindberjum, rifsberjum og blæjuberjum. Tertan er geymd í ísskáp og er líka góð daginn eftir. IMG_8843 IMG_8846


Filed under: Kökur, Tertur Tagged: góð marengsterta, marengsterta með nóa kroppi, marengsterta með rice krispies, marengsterta nóa kropp, marengsterta uppskrift

Bananaostakaka

$
0
0

IMG_0118IMG_0124Innblásturinn að þessari dásemdar ostaköku er þríþættur. Í fyrsta lagi átti ég banana sem orðnir voru brúnir og allir vita hvað það þýðir; bakstur á bananabakkelsi! Í öðru lagi sá ég fyrir nokkru að Dulce de leche sósurnar eru komnar aftur í verslanir, mér til mikillar gleði. Þær eru gerðar úr sætmjólk og það kom upp eitthvað vandamál á tímabili tengt því að ekki væri hægt að flytja inn mjólkurvöru. Nú hins vegar er hægt að nálgast þessa dásemdar karamellusósu aftur en það er líka hægt að búa hana til úr sætmjólk, hér skrifa ég um það (ég mæli með þessari hindberjaböku!). Í þriðja lagi þá reikar hugur minn oft að ostakökunum í Cheesecake factory (ég veit, ég veit… en ég bara eyði miklum tíma í að hugsa um góðan mat! ;) ) og þar er bananaostakakan ofarlega á vinsældarlista mínum. Ég skoðaði ótal uppskriftir að bananaostakökum og raðaði saman í uppskrift öllu því sem mér leist best á. Ég get ekki annað sagt en að þessi ostakaka hafi slegið í gegn og fékk þau ummæli að hún væri „hættulega góð“. Yngsta dóttir mín var hálfhneyksluð á móður sinni þegar ég sagði að mér þætti þessi kaka hreinlega betri en sú sem við fengum á Cheesecake. Þó svo að henni hafi fundist aðeins vanta upp á hógværðina hjá móður sinni þá var hún samt sammála, þessi kaka er sjúklega góð! :)

IMG_0136

Botn:

  • 300 g kex með vanillukremi (ca. 25 kexkökur)
  • 120 g smjör

Smjör brætt og kex mulið í matvinnsluvél eða mixer og því blandað saman við smjörið. Sett í bökunarform með lausum botni og blöndunni þrýst i í botninn og aðeins upp í hliðar á forminu. Sett inn í ísskáp á meðan fyllingin er búin til.

IMG_0107

Ostakaka:

  • 400 g rjómaostur, við stofuhita
  • 2/3 dl sykur
  • 1/2 dl maizenamjöl eða önnur sterkja
  • 3 egg
  • 1 vanillustöng, klofin í tvennt og kornin innan úr báðum helmingunum skafin úr með beittum hníf
  • 1 dl rjómi
  • 3 meðalstórir mjög vel þroskaðir bananar, stappaðir

Borin fram með:

  • karamellusósu (t.d. Dulce de leche)
  • þeyttum rjóma

IMG_0116

Ofn stilltur á 160 gráður við undir/yfirhita. Rjómaostur þeyttur þar til hann verður mjúkur, smátt og smátt er sykri og sterkju bætt út í. Þá er eggjum bætt út í, einu í senn. Því næst er banönum og vanillukornum bætt út í. Að lokum er rjómanum smátt og smátt bætt við og þeytt á meðan. Blöndunni hellt yfir kexbotninn Bakað við 160 gráður í 45-55 mínútur, eða þar til að kakan er bökuð að öllu leiti nema bara dálítið blaut í miðjunni. Þá er slökkt á ofninum og henni leyft að standa í ofninum í allavega hálftíma í viðbót. Notið álpappír yfir kökuna ef hún fer að dökkna mikið þegar líður á bökunartímann. Athugið að ostakakan verður ekki beint stíf þegar hún er tilbúin heldur getur hún ,,dansað” svolítið í miðjunni þó hún sé tilbúin. Síðan sígur kakan dálítið og jafnar sig. Það koma oft sprungur í yfirborðið en það er algengt og skiptir litlu fyrir bragðið. Ostakan er látin kólna í forminu sett ísskáp yfir nóttu eða helst í 6-8 tíma áður en hún er borin fram. Borin fram með karamellusósu og þeyttum rjóma.

IMG_0119IMG_0133


Filed under: Forréttir, Kökur, Tertur Tagged: bananaostakaka uppskrift, bananar uppskrift, bökuð ostakaka, bökuð ostakaka uppskrift, góð ostakaka uppskrift, góður eftirréttur, ostakaka með banönum, ostakaka með bönunum, uppskrift að desert, uppskrift að eftirrétti, uppskrift að ostaköku, uppskrift með banönum, uppskrift með bönunum

Kanilsnúðakladdkaka

$
0
0

kanilsnúðakaka4

Ég veit ekki hvað ég er með orðið margar uppskriftir hér á síðunni af „kladdkökum“ (klessukökum), en þær eru orðnar ansi margar. Ástæðan fyrir því er líklega sænsku áhrifin af langri búsetu minni í Svíþjóð og svo sú staðreynd að ég skoða reglulega sænsk matarblogg og þar ber mikið á kladdkökum – fyrir utan auðvitað hvað þær eru góðar og einfaldar að baka. Ég hef séð uppskrift að þessari köku í margskonar útgáfum á mörgum sænskum bloggum undanfarið og ákvað að prófa að baka hana í dag. Það leið innan við hálftími frá því að ég byrjaði að baka þar til kakan var komin á borðið sem er frábær byrjun. Hvern vantar ekki að eiga góða uppskrift að afar fljótlegri og góðri köku? Kakan sjálf fannst mér ákaflega góð og gestirnir mínir voru mér sammála. Hún minnti óneitanlega á heita og ljúffenga kanilsnúða þó svo að það sé eiginlega bara kanillinn sem er sameiginlegur þáttur með þessu tvennu. Ég er svo heppin að eiga sænskan perlusykur (sjá umfjöllun um hann hér) til að strá ofan á kökuna en það er vel hægt að sleppa honum. Það sem er líka svo frábært við þessa köku er að það þarf enga hrærivél og varla nokkur áhöld, bara einn pott, desilítramál og písk og hráefnin á maður öll yfirleitt til, algjör snilld! :)

Uppskrift:

  • 150 g smjör
  • 2 1/2 dl sykur
  • 2 stór egg
  • 1 msk kanill
  • hnífsoddur salt
  • 1 tsk vanillusykur
  • 2 1/2 dl hveiti
  • perlusykur ofan á kökuna (má sleppa)

Ofn stilltur á 180 gráður við undir/yfirhita. 22-24 cm smelluform smurt að innan. Smjör sett í pott og brætt. Potturinn tekinn af hellunni og smjörið látið kólna dálítið. Þá er restinni af hráefnunum bætt út í pottinn og pískað saman. Deiginu helt í formið og perlusykri dreift yfir (má sleppa). Bakað við 180 gráður í ca. 15-20 mínútur. Athugið að kakan á að vera fremur klesst og blaut og því betra að baka hana styttra en of lengi. Borin fram volg eða köld (hún er ekki síðri daginn eftir) með þeyttum rjóma.

kanilsnúðakaka3 kanilsnúðakaka1


Filed under: Eftirréttir, Kökur Tagged: kanilkaka uppskrift, Kanilsnúðakaka, kanilsnúðaklessukaka, kladdkaka með kanil, kladdkaka uppskrift, klessukaka með kanil

Sjöholukaka

$
0
0

IMG_0302Um daginn héldum við upp á afmæli yngsta barnsins og á boðstólum var auðvitað allt sem hugur afmælisbarnsins girntist. Fyrst á lista var eplakaka en það er klárlega uppáhaldskakan hennar. Svo vildi hún fá ljósbláa köku og hafði alveg ákveðnar skoðanir á þvi hvernig hún átti að líta út. Ég hef jafn gaman að bakstri eins og mér finnst leiðinlegt að skreyta kökur, ég er bara ekki mikil föndurmanneskja. Ég leitaði því enn og aftur til Önnu frænku sem er með Önnu konditori og er algjör listakona auk þess sem kökurnar hennar eru lostæti. Jóhanna mín var ekkert smá ánægð með að fá afmælisköku einmitt eins og hún hafði óskað sér.

IMG_0219 IMG_0211IMG_0220

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag langaði Jóhönnu að baka köku sem passaði vel því á „skrolli“ mínu í gegnum Instagram reikningana sem ég fylgi sá ég sömu kökuna hjá tveimur sænskum matarbloggurum sem mig langaði einmitt að prófa. Ég gat auðvitað ekki setið á mér og við prófuðum að baka kökuna. Hins vegar var ég ekki hrifin af bragðinu af glassúrinum í þessari uppskrift og ég ákvað að búa frekar til súkkulaði-karamellukrem og nota í staðinn. Mér fannst það koma mikið betur úr og gera kökuna afar gómsæta. Þetta er er tilvalin kaka fyrir helgarkaffið! :)

IMG_0294

Uppskrift:

  • 3 egg
  • 3 dl sykur
  • 3 dl hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1/2 dl sjóðandi vatn

Ofn hitaður í 175 gráður við undir/yfirhita. Egg og sykur hrært þar til létt og ljóst. Smátt og smátt er hveiti og lyftidufti bætt út í og í lokin heita vatninu. Deiginu hellt í smurt smelluform (24 cm). Kakan bökuð neðarlega í ofninum við 175 gráður í 35-40 mínútur.

Karamellukrem:

  • 2 dl rjómi
  • 1 dl sykur
  • 1 dl síróp
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 100 g smjör

Öll hráefnin, fyrir utan smjörið, sett í pott. Hrært í blöndunni og suðan látin koma upp. Blandan látin malla þar til að hún þykknar, tekur ca. 10 mínútur, gott að hræra í svolítið á meðan. Þá er potturinn tekin af hellunni og smjörinu bætt út í. Hrært þar til allt hefur blandast vel saman.

Sjö holur gerðar með skafti á skeið í heita kökuna þegar hún kemur úr ofninum (ca. 2 cm í ummál) og heitu kreminu hellt yfir kökuna þannig að holurnar fyllast. Kökunni leyft að kólna um stund og kremið stífna áður en kakan er borin fram.

IMG_0290IMG_0305


Filed under: Kökur Tagged: einföld kaka, góð kaka uppskrift, kaka með karamellukremi, sjö holu kaka uppskrift, sjöholukaka uppskrift

Risa smákaka með Toblerone og Dumle karamellum

$
0
0

IMG_0523 IMG_0543Nú er að renna upp vetrarfrí sem er afar ljúft, sérstaklega þar sem við öll fjölskyldan verðum aldrei þessu vant öll í fríi. Ég er nokkuð viss um að það munu einhverjar kökur renna úr ofninum á þessum komandi frídögum. Um daginn gerði ég þessa risasmáköku sem sló ekkert smávegis í gegn, hún er eiginlega hættulega góð! Syninum fannst þetta eins sú besta kaka sem hann hafði smakkað og ef hann fær að ráða verður þetta kaka vetrarfrísins í ár! :) Ég mæli sannarlega með þessari, hún er afskaplega fljótleg í bakstri og hrikalega góð.

IMG_0547

Uppskrift:

  • 180 g smjör, við stofuhita
  • 1 ½ dl púðursykur
  • 1 ½ dl sykur
  • 1 egg
  • 1 dl haframjöl
  •  3 ½  dl hveiti
  • 1 ½ tsk matarsódi
  • 2 tsk vanillusykur
  • örlítið salt
  • 200 g Toblerone, saxað meðalgróft
  • 120 g Dumle karamellur, skornar í litla bita
  • 1 dl pekan- eða valhnetur, grófsaxaðar

Ofan á:

  • nokkrir molar hvítt súkkulaði, brætt
  • nokkrir molar dökkt súkkulaði, brætt

Ofn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita. Smjör, sykur og púðursykur hrært saman. Þá er eggi bætt út í. Því næst er þurrefnunum hrært saman við og að lokum er Toblerone súkkulaði, Dumle karamellum og hnetum bætt út í. 22-24 cm bökunarform er klætt að innan með bökunarpappír og degið sett í formið, því þrýst jafnt út í alla kanta. Bakað neðarlega í ofni í 30-35 mínútur eða þar til kakan hefur tekið fallegan lit. Bræddu hvítu og dökku súkkulaði er dreift yfir kökuna eftir að hún kemur úr ofninum. Gott er að bera fram kökuna volga með vanilluís en hún er ekki síðri köld. 

IMG_0540IMG_0541


Filed under: Eftirréttir, Kökur Tagged: kaka með dumle, kaka með toblerone, smákökur uppskrift, stór smákaka
Viewing all 71 articles
Browse latest View live